Já í ágúst er mögulega já við stöðugra umhverfi!
Já í ágúst gefur okkur möguleika. Þetta er póstur í röð færslna þar sem ég fer yfir hvers vegna við eigum að klára ESB-viðræðurnar og sjá samninginn. #Jágúst
Ófyrirsjáanlegar sveiflur, verðbólguskot og háir vextir eiga ekki að vera sjálfgefinn fylgifiskur þess að búa á Íslandi. Með því að segja já við áframhaldandi viðræðum veljum við að kanna til þrautar hvernig evrópskur stöðugleiki getur nýst íslenskum heimilum og fyrirtækjum til frambúðar. Leyfum þjóðinni að fá samninginn á borðið svo við getum tekið upplýsta ákvörðun um hvort við viljum halda áfram í vörn eða sækja fram í skjóli tryggara efnahagsumhverfis.
#Jágúst