Já í ágúst er já við sterkari kaupmætti fyrir heimilin í landinu!

Já í ágúst gefur okkur möguleika. Þetta er póstur í röð færslna þar sem ég fer yfir hvers vegna við eigum að klára ESB-viðræðurnar og sjá samninginn. #Jágúst

Já í ágúst er já við sterkari kaupmætti fyrir heimilin í landinu!
Photo by Yuri Krupenin / Unsplash

Það á ekki að vera þannig að launahækkanir fólks brenni strax upp í verðbólgubáli og okurvöxtum. Með því að segja já við áframhaldandi viðræðum veljum við að kanna til þrautar hvernig evrópskur efnahagsstöðugleiki getur tryggt að launin okkar haldi raunverulegu virði sínu og gott betur til langs tíma. Klárum samninginn og leyfum þjóðinni að eiga síðasta orðið um það hvort við viljum áframhaldandi rýrnun launanna okkar eða sterkan og varanlegan kaupmátt.

#Jágúst