Já í ágúst er mögulega já við lægra vöruverði og afnámi tollamúra!
Já í ágúst gefur okkur möguleika. Þetta er póstur í röð færslna þar sem ég fer yfir hvers vegna við eigum að klára ESB-viðræðurnar og sjá samninginn. #Jágúst
Það á ekki að vera sjálfgefið að íslenskir neytendur greiði háa tolla af hversdagslegum matvælum og nauðsynjum miðað við fólk í öðrum Evrópulöndum. Með því að segja já við áframhaldandi viðræðum veljum við að skoða hvernig afnám þessara tollamúra og aukin samkeppni getur lækkað framfærslukostnað heimilanna varanlega. Klárum samninginn og leyfum þjóðinni að kjósa um hvort við viljum halda áfram að verja úrelt tollakerfi eða njóta evrópsks vöruverðs og aukins vöruúrvals.
#Jágúst