Já í ágúst er mögulega já við breytingum og framförum!
Já í ágúst gefur okkur möguleika. Þetta er póstur í röð færslna þar sem ég fer yfir hvers vegna við eigum að klára ESB-viðræðurnar og sjá samninginn. #Jágúst
Kyrrstaða og óbreytt ástand þjóna fyrst og fremst þeim sem hagnast á gömlu kerfi, á meðan samfélagið allt situr eftir. Með því að segja já við ESB-viðræðum sýnum við að við höfum kjark til að horfa fram á við, tileinka okkur nýjar lausnir í alþjóðlegu samstarfi og nútímavæða íslenskt samfélag enn frekar. Breytingar eiga ekki að hræða okkur, þær eru forsenda þess að við spyrnum okkur fram á við og tryggjum lífskjör í fremstu röð.
#Jágúst