Já í ágúst er já við auknum samstarfsmöguleikum í menntun, rannsóknum og nýsköpun!
Já í ágúst gefur okkur möguleika. Þetta er póstur í röð færslna þar sem ég fer yfir hvers vegna við eigum að klára ESB-viðræðurnar og sjá samninginn. #Jágúst
Framtíðarlífskjör á Íslandi ráðast af því hversu vel okkur tekst að byggja upp þekkingarsamfélag sem stenst alþjóðlegan samanburð. Með því að segja já við áframhaldandi viðræðum veljum við að skoða hvernig dýpri þátttaka í evrópskum sjóðum og tengslanetum getur lyft íslenskri menntun og vísindastarfi á hærra plan. Klárum samninginn og leyfum þjóðinni að eiga síðasta orðið um það hvort við viljum standa á hliðarlínunni eða tryggja hugvitinu okkar fullan og jafnan aðgang að stærsta þekkingarsamfélagi heims.