Einn á móti milljón: Hið tölfræðilega kraftaverk Miðflokksins

Er hægt að sigra líkindafræðina? Miðflokkurinn er með 19 karlkyns oddvita í 19 sveitarfélögum. Líkurnar á að þetta gerist fyrir tilviljun eru 1 á móti 524.288. Þegar staðreyndirnar eru fjarstæðukenndari en Royal Flush í póker, þá blasir við kerfisbundin útilokun kvenna.

Share
Einn á móti milljón: Hið tölfræðilega kraftaverk Miðflokksins
Photo by Connie de Vries / Unsplash

Nú þegar flokkarnir hafa lokið uppstillingum og kynnt framboðslista sína fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, blasir við niðurstaða sem ætti að fá alla áhugamenn um tölfræði og jafnrétti til að sperra eyrun.

Miðflokkurinn hefur kynnt lista í 19 sveitarfélögum þar sem boðið er fram undir nafni flokksins. Niðurstaðan er söguleg, en kannski ekki á þann hátt sem fólk vonaðist eftir, af þessum 19 listum eru 19 karlkyns oddvitar. Ekki ein einasta kona leiðir lista flokksins á landsvísu.

Það má vel vera að flokkurinn tali fyrir „verðleikasamfélagi“, en þegar tölfræðin er 19 gegn 0, þá hlýtur maður að spyrja sig hvort verðleikarnir finnist raunverulega bara hjá öðru kyninu samkvæmt mælistiku flokksins.

Þegar þeim hefur verið bent á þetta sláandi misræmi á opinberum vettvangi, er svarið gjarnan á eina leið: „Við veljum bara þann hæfasta, óháð kyni.“ Þetta hljómar vel í kenningu, en þegar við skoðum raunveruleikann með gleraugum líkindafræðinnar, fellur þessi röksemdafærsla um sjálfa sig með hvelli.

​Stærðfræði „tilviljunarinnar“

​Gefum okkur að kynin séu jafn hæf til forystu (sem ætti ekki að vera djörf ályktun árið 2026). Ef hæfni dreifist jafnt, eru 50% líkur á því að hæfasti einstaklingurinn í hverju sveitarfélagi sé kona og 50% líkur á að það sé karl.

  • 14-0: Þegar fjórtán listar voru komnir fram hjá Miðflokknum (13. apríl s.l.), voru líkurnar á hreinni karlalínu um 1 á móti 16.384. Það þótti fjarstæðukennt þá, sjá umræðu hér.
  • 19-0: Nú þegar ljóst er að listarnir hjá Miðflokknum eru formlega staðfestir nítján talsins, með eintómum körlum í oddvitasætunum, hafa líkurnar minnkað niður í 1 á móti 524.288.
  • 20-0: Ef flokkurinn hefði ekki klúðrað frestinum í tuttugasta sveitarfélaginu (þar sem einnig var gert ráð fyrir karlkyns oddvita), væru líkurnar 1 á móti 1.048.576.

​Við erum semsagt komin á þann stað að það er bókstaflega meiri von á því að vinna stóra vinninginn í lottói eða fá „Royal Flush“ í póker í fyrstu fimm gefnu spilunum en að þessi niðurstaða sé til komin vegna hlutlauss mats á hæfni.

​Er hæfni bundin við litninga?

​Til að trúa því að 19 sjálfstæðar uppstillingarnefndir hafi allar „fyrir tilviljun“ fundið karlmann sem hæfasta kostinn, þarf maður að trúa einu af tvennu:

  1. ​Að konur séu tölfræðilega óhæfari en karlar til að leiða (sem stríðir gegn öllum gögnum um menntun og starfsreynslu á Íslandi).
  2. ​Að Miðflokkurinn sé með „kerfislæga síu“ sem sér einfaldlega ekki hæfni nema hún komi í karlmannsmynd.

​Það er nefnilega dýrkeypt að starfa í svona mikilli einsleitni. Þegar allir við borðið hafa svipaðan bakgrunn og sömu lífsreynslu, myndast hjarðheilkenni (e. groupthink). Blindir blettir verða að risavöxnum eyðum og ákvarðanatakan staðnar. Einkageirinn lærði þetta fyrir mörgum árum, ekki af því að forstjórar þar væru svona miklir „vinstri-menn“, heldur vegna þess að fjölbreytt teymi taka hreinlega betri ákvarðanir og skila meiri hagnaði.

​„Konur vilja þetta bara ekki“

​Annað algengt svar er að konur „sækist síður í þetta“. En það sýnir í raun bara hversu óaðlaðandi vinnustaður flokkurinn er orðinn fyrir helming þjóðarinnar. Ef hæfar konur forðast oddvitasæti Miðflokksins eins og heitan eldinn, þá er það dómur yfir menningu flokksins, ekki metnaði kvenna.

​Það þarf nefnilega sérstaka „hæfni“ til að ná að klúðra kynjajafnvæginu svona rækilega. Það er ekki verið að biðja um að konur séu valdar „af því að þær eru konur“. Það er verið að benda á að það er tölfræðilega útilokað að þær séu ekki valdar nema vegna þess að kerfið sé gallað innan flokksins.

​Niðurstaðan

​Að halda því fram að 19-0 (hvað þá 20:0) sé eðlileg skipting árið 2026 er móðgun við rökhugsun og heilbrigða skynsemi og ekki síður konur. Þegar líkurnar á niðurstöðunni eru orðnar ein á móti hálfri milljón, þá erum við hætt að ræða um pólitík og byrjuð að ræða um tölfræðilegt kraftaverk.

​Til hamingju, Miðflokkurinn. Ykkur tókst að sigra líkindafræðina. Spurningin er bara hvort kjósendur hafi áhuga á að veðja á flokk sem sér bara hæfni í öðru kyninu.