Af hverju er enginn alvöru magnafsláttur hjá Strætó?
Af hverju er enginn alvöru magnafsláttur hjá Strætó? Með því að bjóða 20-40% afslátt af magnmiðum mætti auðveldlega hvetja fólk til að velja strætó fram yfir bílinn. Ég sendi Strætó póst til að kalla eftir breytingum og hvet þig til að gera hið sama!
Við þekkjum þetta mörg. Við viljum nota almenningssamgöngur meira, spara eldsneyti og minnka kolefnissporið, en þegar kemur að því að velja á milli þess að hoppa upp í bíl eða borga 690 krónur fyrir eina ferð með Strætó, þá vinnur bíllinn oft á stigum.
Ég hef velt þessu fyrir mér að undanförnu og niðurstaðan er einföld: Það vantar meiri hvata.
Á Íslandi höfum við valið á milli stakra miða eða mánaðarkorts. Það vantar eitthvað þarna á milli, eitthvað sem verðlaunar okkur fyrir að velja Strætó oftar án þess að við þurfum að binda okkur í mánaðaráskrift.
Horfum til nágranna okkar
Ef við lítum til Kaupmannahafnar eða Lundúna, sjáum við kerfi (eins og Rejsekort og Oyster) sem eru hönnuð til að verðlauna notkun. Þar færðu afslátt strax eða eftir því hvað þú ferðast mikið. Af hverju erum við ekki með eitthvað svoleiðis hér?
Hér eru helstu rök mín fyrir því að magnafsláttur myndi breyta leiknum:
- Sálfræðilegi hvatinn: Ef ég á 10-20 miða inni í appinu sem ég keypti með t.d. 20-30% afslætti, þá er „kostnaðurinn“ við ferðina þegar búinn. Þröskuldurinn við að stíga um borð lækkar verulega.
- Sveigjanleiki í vinnu: Fleiri og fleiri vinna heima kannski 2-3 daga í viku. Fyrir þann hóp borgar mánaðarkort sig ekki, en stakir miðar gefa ekki hvatann. Magnmiðar eru hin fullkomna lausn.
- Betri nýting á kerfinu: Með „miða í veskinu“ er auðveldara að grípa strætó í óvæntar útréttingar eða til að fara á viðburði, sem eykur tekjur kerfisins þegar til lengri tíma er litið.
Ég ætla að láta í mér heyra, vilt þú gera það líka?
Ég hef ákveðið að senda Strætó formlegan tölvupóst þar sem ég legg til að þeir endurskoði gjaldskrána og innleiði einfalt magnafsláttarkerfi í Klappið.
Við getum haft áhrif! Ef við erum mörg sem sendum sambærilega ábendingu, neyðast þau til að skoða málið. Ég hvet þig til að gera hið sama. Þú mátt gjarnan nýta rökin hér að ofan, jafnvel tölvupóstinum hér undir eða deila þinni eigin upplifun.
Sendum póst á straeto@straeto.is og biðjum um kerfi sem hvetur okkur til að skilja bílinn eftir heima og á sama tíma eykur tekjur Strætó.
Hvað finnst þér? Myndir þú nota Strætó meira ef þú fengir 20% afslátt við að kaupa 10 miða í einu?
Eftirfarandi tölvupóst sendi ég á Strætó, straeto@straeto.is:
Sæl verið þið,
Ég skrifa ykkur þessar línur sem almennur notandi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og áhugamaður um hvernig megi efla þær enn frekar.
Við innleiðingu á Klapp-greiðslukerfinu hafa margir kostir fylgt tækninni, en mér finnst kerfið skorta mikilvægan hvetjandi þátt sem finna má víða erlendis: magnafslátt.
Helstu rök mín fyrir því að Strætó ætti að íhuga slíkt fyrirkomulag eru eftirfarandi:
- Sálfræðilegur hvati: Núverandi kerfi með stökum miðum skapar þröskuld fyrir fólk sem vill nota strætó reglulega en ekki nægilega mikið til að kaupa mánaðarkort. Með því að bjóða magnafslátt (t.d. 20% aflslátt við kaup á 10 miðum í einu og/eða 40% afslátt við kaup á 20 miðum - því einfaldara kerfi, því betra) er búinn til hvati til að velja strætó fram yfir einkabílinn. Athugið að t.d. í sundlaugum Reykjavíkur er yfir 50% afsláttur ef keypt eru 10 skipti í einu, það er hvetjandi.
- Sveigjanleiki í vinnu: Í heimi þar sem fjarvinna er algeng henta föst tímabilskort (mánaðarkort) ekki öllum. Magnmiðar eða einhverskonar afsláttur brúar bilið á milli þess að kaupa staka miða á fullu verði og þess að binda sig við heil tímabil.
- Fyrirmyndir erlendis: Kerfi eins og Rejsekort í Danmörku eða Oyster í Lundúnum nota afsláttarkerfi sem auka ánægju notenda og efla nýtingu kerfisins.
- Aukin nýting: Með því að bjóða upp á afslætti myndi það hvetja fólk til að kaupa fleiri miða í einu og þá er auðveldara að hoppa um borð í strætó hvenær sem er, jafnvel fyrir fólk sem er vant að nota einkabílinn í allskyns útréttingar sem og laða að nýja hópa sem gætu notað strætó til að sækja afþreyingu o.fl.
Ég tel að með því að bjóða upp á raunverulegan sparnað með því að eiga „miða í veskinu“ (s.s. í appinu) myndi fólk upplifa kerfið sem sanngjarnara og aðgengilegra. Það að lækka einingaverðið þegar fleiri miðar eru keyptir, væri stórt skref í átt að því að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir enn fleiri og jafnvel hafa áhrif á viðhorf fólks gagnvart almenningssamgöngum. Það myndi líklega auka tekjur Strætó líka, þar sem fólk myndi kaupa fleiri miða í einu og á sama tíma hafa hvatningu til að nota kerfið meira.
Ég hvet ykkur til að skoða hvort hægt sé að útfæra svona afsláttarkerfi innan Klappsins í náinni framtíð.
Með vinsemd og von um góð viðbrögð.
Mbk.
Sveinn