26.04.2026 - Maraþon

1:59:30. Í dag varð Kibet Ronoh fyrstur til að rjúfa tveggja tíma múrinn í maraþoni í opinberri keppni. Þetta jafngildir 422 hundrað metra sprettum á 17 sekúndum, í röð.

Share
26.04.2026 - Maraþon
getty/Alex Davidson

​Í dag varð sá sögulegi atburður í Lundúnum þegar Kibet Ronoh varð fyrsti maðurinn til að hlaupa maraþon undir tveimur klukkustundum í opinberri keppni. Nýja heimsmetið er 1:59:30.

​Afrekið er nánast óskiljanlegt þegar tölurnar eru skoðaðar nánar. Til að ná þessum tíma þurfti Ronoh að halda meðalhraða upp á rúmlega 21 km/klst.

​Hraðinn í samhengi

​Fyrir okkur hin dauðlegu hljómar þetta svona:

  • ​Þetta jafngildir því að hlaupa 422 hundrað metra spretti í röð.
  • ​Hver sprettur er hljaupinn á u.þ.b. 17 sekúndum.
  • ​Engin pása, ekkert stopp – í tæpa tvo tíma.

​Nýliðinn og framtíðin

​Það sem gerir daginn enn magnaðri er frammistaða Eþíópíumannins Abenezer Temesgen. Hann var að þreyta sitt allra fyrsta maraþon og endaði aðeins 11 sekúndum á eftir Ronoh á tímanum 1:59:41.

​Að tveir menn rjúfi þennan sálfræðilega múr í sömu keppninni sýnir að við erum komin á nýtt stig í íþróttasögunni. Mörkin hafa færst til og spurningin er ekki lengur hvort hægt sé að hlaupa undir tveimur tímum, heldur hversu miklu hraðar menn geta farið.