10.05.2026 - Borholuhús
Kíkti á Carbfix-borholuhúsið í Elliðaárdal. Þessi flotta hönnun Einars Þorsteins Ásgeirssonar hýsir íslenska tækni sem breytir koldíoxíði í stein. Skemmtileg blanda af vísindum og hönnun í miðri borginni!
Í dag kíkti ég í Elliðaárdalinn til að skoða eitthvað sem lítur dáldið út eins og lítil geimstöð, en er í raun sýningarútgáfa af Carbfix borholuhúsi og stendur núna við Elliðaársstöðina í tilefni af HönnunarMars.
Þótt tæknin sjálf sé ekki í gangi þarna inni, þá er húsið sjálft hannað til að vekja eftirtekt. Heiðurinn af þessari einstöku rúmfræðilegu hönnun á íslenski hönnuðurinn og brautryðjandinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson. Upphaflega hannaði hann þessar hvelfingar til að vernda iðnaðarbúnað á Hellisheiði, en í dag er hönnunin orðin að heimsþekktri táknmynd nýsköpunar í loftslagsmálum.
Hér má lesa nánar um þessi borholuhús.