10.05.2026 - Ánamaðkar

Fyrstu ánamaðkarnir á stígnum, hættulegt ferðalag en ómissandi merki um að sumarið sé á leiðinni.

10.05.2026 - Ánamaðkar

Á göngu okkar hundsins fyrr í kvöld rakst ég á fyrstu ánamaðkana þar sem þeir freistuðu þess að skríða yfir göngustígana. Það gekk á ýmsu í þeirri baráttu, en þessi lífseiga tilraun er dýrmæt áminning um að sumarið sé raunverulega á leiðinni. Það er eitthvað við þessa litlu ferðalanga sem boðar vorið af meiri þunga en flest annað.